15. júl. 2010
Refsivert að brjóta gegn lagaákvæðum um verðtryggingu
Talsmaður neytenda hefur beint því formlega til Fjármálaeftirlitsins og Seðlabanka Íslands að afturkalla tilmæli þessara stofnana til fjármálafyrirtækja frá 30. júní sl. vegna valdþurrðar, rangs lagagrunns, skorts á lagastoð að formi og efni til og ónógs undirbúnings.
Talsmaður neytenda sendi í lok síðustu viku formlega ábendingu til Fjármálaeftirlitsins (FME) og Seðlabanka Íslands (SÍ) um að
„rétt sé að afturkalla tilmæli þessara stofnana frá 30. júní sl. að því er neytendur varðar.“
Umboðsmanni Alþingis og ríkisstjórninni voru send afrit af ábendingu þessari.
Margvísleg lagarök auk refsiheimildar
Ábendingin er byggð á því að FME og SÍ hafi ekki valdheimildir til þess að senda umrædd tilmæli - sem séu auk þess byggð á röngum lagagrunni eins og þar er rökstutt nánar. Enn fremur hafi tilmælin ekki fengið réttan undirbúning. Þá segir:
„Þá tel ég að tilmælin fari hvað neytendur varðar í bága við skýrar efnis-, skýringar- og sönnunarreglur 36. gr. laga nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga, sbr. l. nr. 11/1986, og einkum 36. gr. a, 36. gr. b og 36. gr. c í lögunum, sbr. l. nr. 14/1995.“
Í niðurlagi rökstuðnings ábendingarinnar segir:
„Loks ber að mínu mati að hafa í huga að í 17. gr. vaxtalaga er lögð refsing við broti á VI. kafla laganna sem Hæstiréttur dæmdi hinn 16. júní sl. að hefði verið brotið gegn með gengistryggingu lána.“
Engin efnisleg viðbrögð frá 2. júlí sl.
Um ástæður og aðdraganda ábendingarinnar segir svo í upphafi og niðurlagi hennar:
„Í 1. mgr. 6. gr. laga nr. 62/2005 um embætti talsmanns neytenda segir að talsmanni neytenda beri að standa vörð um hagsmuni og réttindi neytenda og stuðla að aukinni neytendavernd. Í b-lið 2. mgr. 6. gr. laganna segir einnig að hlutverk talsmanns neytenda felist m.a. í því að bregðast við þegar hann telur brotið gegn réttindum og hagsmunum neytenda. Þá segir í d-lið 2. mgr. 6. gr. laganna að hlutverk talsmanns neytenda sé að setja fram tillögur um úrbætur á lögum og stjórnvaldsfyrirmælum er varða neytendur sérstaklega. Að gefnu tilefni og í framhaldi af samskiptum við fulltrúa Fjármálaeftirlitsins (FME) og Seðlabanka Íslands (SÍ) vil ég koma á framfæri eftirfarandi ábendingu. Ábendingin var send í drögum til þessara stofnana hinn 2. júlí sl. og lítið breytt að nýju í gær en engin efnisleg viðbrögð hafa borist þótt eftir hafi verið leitað.
[...]
Ábending þessi er í samræmi við þau áform sem ég kynnti opinberlega í kjölfar dóma Hæstaréttar um sjálfstæð viðbrögð af hálfu talsmanns neytenda yrðu viðbrögð fjármálafyrirtækja og stjórnvalda ekki fullnægjandi gagnvart neytendum, sbr. og svarbréf mitt, dags. 21. júní sl., til efnahags- og viðskiptaráðherra um viðhorf embættisins til þess hvernig mætti vinna úr þeirri stöðu sem upp væri komin í kjölfar dómanna. Sem fyrr er ég sem talsmaður neytenda vitaskuld reiðubúinn til samráðs við alla sem eiga í hlut um rétt viðbrögð í þágu neytenda og annarra lögmætra hagsmuna. Ég tel rétt að stofnanirnar endurskoði aðkomu sína að málinu að höfðu samráði við fulltrúa helstu hagsmunaaðila - að teknu tilliti til þeirra lagaröksemda sem að framan greinir. “
Tryggt sjálfstæði til slíkra afskipta
Sjaldgæft er að embættið sendi öðrum stjórnsýsluaðilum formlega ábendingu og hefur það aðeins gerst tvívegis áður - annars vegar til eftirlitsnefndar með starfsemi fasteignasala 2007 og hins vegar 2009 til Lögmannafélags Íslands sem eftirlitsaðila með innheimtustarfsemi lögmanna. Ráð er gert fyrir slíkum afskiptum í 10. gr. laga um embættið þar sem segir að talsmaður neytenda sé í störfum sínum
„óháður fyrirmælum frá öðrum. Álitum talsmanns neytenda sem unnin eru á grundvelli laga þessara verður ekki skotið til annars stjórnvalds.“
Í athugasemdum með 10. gr. í lagafrumvarpinu segir að með þessu ákvæði sé
„lögð áhersla á það að talsmaður neytenda sé óháður fyrirmælum frá öðrum í störfum sínum, en sökum eðlis starfa hans er mikilvægt að hann sé sjálfstæður gagnvart stjórnvöldum og öðrum aðilum. Í ljósi þess að fyrirsjáanlegt er að ábendingar talsmanns neytenda geti beinst gegn stjórnvöldum, m.a. þeim sem fara með neytendamál, er mikilvægt, ekki síst til að tryggja traust almennings á störfum talsmannsins, að talsmaður neytenda sé sjálfstæður og óháður þessum aðilum í störfum sínum.“
***
Lesa ábendinguna í heild.
Til baka
Fréttasafn
Heimilt er að birta merki talsmanns neytenda með fréttum af vef embættisins - www.tn.is - en óskað er eftir því að þeirrar heimildar sé getið.