6. júl. 2010

Annað gengismál flutt í héraði á morgun


Í máli, sem flutt verður í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun, reynir á önnur atriði en dæmd voru í Hæstarétti 16. júní sl. þar sem nú eru gerðar kröfur um að annað komi í stað ólögmætrar gengistryggingar.



Á morgun, miðvikudag, 7. júlí verður flutt mál í Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem reynir á ágreining sem upp er kominn eftir nýlega dóma Hæstaréttar í svonefndum bílalánamálum. Nú er deilt um hvort eitthvað - og þá eftir atvikum hvað - komi í stað skilmála um gengistryggingu lánasamninga sem Hæstiréttur dæmdi ólögmæta samkvæmt lögum um vexti og verðtryggingu. 

 

Lýsing stefnir

Á vef dómstólsins er þessar upplýsingar að finna um málið:

 

 7. júl. 09:15-11:45  Salur 101 Arnfríður Einarsdóttir héraðsdómari
Mál nr. E-4787/2010 Munnlegur málflutningur Skuldamál
Stefnandi: Lýsing hf (Sigurmar Kristján Albertsson hrl.)
Stefndi:  [...] (Jóhannes Árnason hdl.)

 

Dómur í lok júlí eða byrjun ágúst

Miðað við fresti í lögum um meðferð einkamála og framkvæmd héraðsdómstóla og afstöðu Hæstaréttar til þeirra má búast við dómi í lok júlí eða fyrri hluta ágústmánaðar að óbreyttu. Ýmislegt gæti þó orðið til þess að tefja niðurstöðu.

 

Æskilegt að leita álits EFTA-dómstólsins?

Ekki er útilokað að unnt sé að leita við rekstur málsins eftir ráðgefandi áliti EFTA-dómstólsins samkvæmt lögum þar um enda reynir í málinu væntanlega á löggjöf - svo sem 36. gr. laga um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga og einkum stafliði a-d - sem felur í sér innleiðingu á neytendavernd Evrópuréttar. Hefur talsmaður neytenda vakið athygli lögmannsstofu þess lántakanda, sem stefnt er í málinu, á þessum möguleika.

 

Meðalganga hugsanleg

Á síðari stigum mun talsmaður neytenda skoða möguleikann á því að óska meðalgöngu á áfrýjunarstigi málsins en í meðalgöngu felst að sjálfstæður aðili blandar sér í mál annarra aðila til þess að gera sérstakar kröfur og eftir atvikum færa fram sjálfstæðar málsástæður og lagarök.

 

Til baka



Fréttasafn

Senda frétt



Heimilt er að birta merki talsmanns neytenda með fréttum af vef embættisins - www.tn.is - en óskað er eftir því að þeirrar heimildar sé getið.

Greinar

27. jún. 2010

„Neytendur voru sýknaðir“

Sérfræðingur í kröfurétti og fullnusturéttarfari telur í áliti til talsmanns neytenda fullvíst að dómar Hæstaréttar um gengistryggð bílalán eigi einnig við um slík íbúðarlán og rökstyður það m.a. með vísan til lagareglna um skuldabréf.
Nánar

18. jún. 2010

Áhrif gengisdómanna og viðbrögð

Endurbirtur pistill talsmanns neytenda á eyjan.is frá í gær um æskileg - og síður æskileg - viðbrögð sem dómar Hæstaréttar í gengismálum kalla á, svo og um álitamál sem vakna um áhrif þeirra.
Nánar

19. apr. 2010

Hamfaraviðbrögð

Ræða talsmanns neytenda á Austurvelli laugardaginn 17. apríl 2010 - þar sem borin voru saman viðbrögð stjórnvalda við efnahagshamförum annars vegar og við náttúruhamförum hins vegar.
Nánar

24. mar. 2010

Skattur á niðurfærslu skulda neytenda stenst ekki stjórnarskrá

Telja verður að afstaða um skattskyldu vegna niðurfærslu skulda neytenda standist varla lög og áform um skattlagningu niðurfærslu nú fari í bága við stjórnarskrá - enda sé um ekki um að ræða ívilnun eða „eignaauka“ heldur staðfestingu á rétti neytenda. Er þá m.a. litið til þess að löggjafinn hefur þegar fallist á að forsendubrestur hafi orðið.
Nánar

Greinasafn


Languages

Íslenska English

Aukaval


Aukaval




Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli