2. júl. 2010
Bankar innheimti aðeins fasta krónutölu af umdeildum lánum
Fyrstu formlegu viðbrögð talsmanns neytenda við gengisdómum Hæstaréttar hafa verið send bönkunum í gegnum hagsmunasamtök þeirra og fela í sér að milda áhrif umdeildra tilmæla FME og Sí í fyrradag.
Talsmaður neytenda hefur sent bönkum og öðrum fjármálafyrirtækjum tilmæli í gegnum hagsmunasamtök þeirra, Samtök fjármálafyrirtækja (SFF), um að láta neytendur njóta vafans ef fyrirtækin velkjast í vafa um fordæmisáhrif nýlegra dóma Hæstaréttar um ólögmæti gengistryggðra lána.
Aðeins innheimt föst krónutala
Í tilmælunum - sem eru fyrstu formlegu viðbrögð talsmanns neytenda eftir umdeild tilmæli Fjármálaeftirlitsins (FME) og Seðlabanka Íslands (SÍ) í fyrradag - er þess farið á leit að samtökin:
„hvetji aðildarfyrirtækin til þess að innheimta aðeins tiltekna krónutölu miðað við hverja milljón króna af upphaflegum höfuðstól lána ef vafi er talinn leika á hvort lánaskilmálar falli undir fordæmisáhrif dóma Hæstaréttar frá 16. júní sl. í málum þar sem gengistrygging var dæmd ólögmæt samkvæmt lögum um vexti og verðtryggingu.“
Hagstæðara neytendum en tilmæli FME og SÍ
Óumdeilt er að þetta fyrirkomulag væri hagstæðara neytendum en umdeild tilmæli FME og SÍ frá 30. júní sl. - sem talsmaður neytenda hefur þegar andmælt og leitast við að vinda ofan af. Fordæmi eru fyrir sambærilegri lausn áður.
Gildi þar til fordæmi sker úr ágreiningi
Í tilmælunum er þess farið á leit að slíkt hagkvæmara fyrirkomulag
„gildi þar til endanlegt fordæmi dómstóls fæst í þeim ágreiningi sem upp er kominn um hvort eitthvað - og þá hvað - geti komið í stað hinnar ólögmætu gengistryggingar.“
Frekari viðbrögð eftir helgi
Búast má við frekari fréttum af viðbrögðum talsmanns neytenda í kjölfar gengisdóma Hæstaréttar og tilmæla FME og SÍ eftir helgi - þ.m.t. leiðbeiningar um hvernig neytendur eigi að bregðast við.
***
Nánari upplýsingar veitir Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda í síma 510 11 21 eða GSM 897 33 14.
Til baka
Fréttasafn
Heimilt er að birta merki talsmanns neytenda með fréttum af vef embættisins - www.tn.is - en óskað er eftir því að þeirrar heimildar sé getið.