18. jún. 2010

Stjórnvöld leiti heildstæðrar sáttar um skuldauppgjör


Talsmaður neytenda hefur í dag á fjórum fundum með tveimur ráðherrum, tveimur þingnefndum, þingmönnum og hagsmunaaðilum hvatt til þess að stjórnvöld hafi frumkvæði að heildstæðri sátt - með löggjöf eða eftir mati gerðardóms - um heildstætt uppgjör og mat á réttarstöðu neytenda og kröfuhafa.



Talsmaður neytenda hefur í dag átt fjóra fundi með

  • efnhags- og skattanefnd og viðskiptanefnd Alþingis á sameiginlegum fundi,
  • þingmönnum, Hagsmunasamtökum heimilanna (HH), lögmönnum og öðrum fulltrúum neytenda,
  • dómsmála- og mannréttindaráðherra og
  • efnahags- og viðskiptaráðherra

um viðbrögð við dómum Hæstaréttar í fyrradag í málum er varða svonefnd gengisbundin lán og áhrif þeirra á réttarstöðu og skuldauppgjör neytenda. Á fundunum lagði talsmaður neytenda til grundvallar upphafsgreiningu sína á hugsanlegum viðbrögðum við dóminum og álitaefnum sem dómarnir svara og vekja.

 

Sammæli um víðtækt fordæmisgildi

Eftir þessa fundi og samráð talsmanns neytenda við fjölmarga aðra löglærða og hagsmunaaðila, svo og af opinberri umræðu að dæma, m.a. fræðimanna og lögmanna, virðast flestir deila þeirri skoðun talsmanns neytenda að dómarnir hafi víðtækt og mikið fordæmisgildi. Sammæli virðist m.a. um að dómarnir nái m.a. til sambærilegra íbúðarlána. 

 

Varar banka við að reyna að þrengja fordæmið

Vill talsmaður neytenda því að gefnu tilefni vara banka og aðrar fjármálastofnanir við að leitast við að þrengja fordæmisgildi hæstaréttardómanna eða sniðganga dómana - eins og vísbendingar hafa því miður komið fram um.

 

Fundinn með þingnefndunum sátu einnig fulltrúar HH, fulltrúi Bankasýslu ríkisins og fulltrúi Samtaka fjármálafyrirtækja. Fundinn með efnahags- og viðskiptaráðherra sátu einnig fulltrúar HH.

 

Lagt til að stjórnvöld taki frumkvæðið til að skapa sátt og hindra óvissu og óhagræði

Á nefndum fundum lagði talsmaður neytenda til að stjórnvöld tækju skjótt frumkvæði í málinu - í samráði við fulltrúa neytenda og aðra hagsmunaaðila. Tóku margir undir þá nálgun - m.a. í því skyni að skapa sátt, hindra frekari bið og óvissu, draga úr óþarfa málaferlum og tryggja stöðu neytenda.

 

Fordæmið verði útfært í lögum eða með gerðardómsmati

Lagði talsmaður neytenda aðallega til að leitað yrði víðtæks samráðs meðal þessara aðila um löggjöf til þess að skýra hvað fælist í lögum og reglum - ekki síst með nýkomnum fordæmum frá Hæstarétti - um löggjöf sem skýrði hvað tæki við í þeim neytendalánasamningum sem falla beint eða óbeint undir fordæmi Hæstaréttar. Taldi talsmaður neytenda síður þörf á að setja lög til þess að útfæra uppgjör til neytenda vegna ofgreiðslna neytenda í gengistryggðum lánasamningum - enda virðist í lögum og dómum mega finna vísbendingu um slíkt uppgjör. Þó er ljóst að viðhafa þarf gott samráð um hver sé réttasta nálgunin í því efni.

 

Til vara áréttaði talsmaður neytenda formlega tillögu sína til stjórnvalda í apríl 2009 og tilmæli til banka og annarra kröfuhafa í ágúst 2009 um að réttarstaða neytenda og kröfuhafa yrði metin heildstætt af gerðardómi sem skipaður yrði fulltrúum beggja aðila. Slíkt býður upp á mismunandi nálgun eftir tegund, tímasetningu og tímalengd lána auk fleiri sjónarmiða sem finna má í upphaflegri tillögu.

 

Hugsanleg tilmæli á næstunni

Af framangreindum sökum hefur talsmaður neytenda enn ekki lokið við að svara helstu álitamálum sem greind voru í gær - þ.m.t. einu stærsta álitaefninu, sem er hvort eitthvað geti komið í stað þeirrar gengisviðmiðunar sem Hæstiréttur hefur nú staðfest að sé andstæð lögum. Önnur nálgun kynni að vera að líta svo á að endursemja bæri eða endurfjármagna með atbeina ríkisvaldsins um óraunhæf og óhagstæð lánakjör á viðvarandi langtímasamningum.

 

Hins vegar kemur til greina að talsmaður neytenda sendi frá sér formleg eða óformleg tilmæli til handhafa ríkisvalds eða kröfuhafa um bráðabirgðalausnir eða endurmat á málum sem forsendur hafa nú brostið fyrir.

 

***

 

Frekari upplýsingar veitir talsmaður neytenda, Gísli Tryggvason, í síma 510 11 21 eða GSM 897 33 14.

 

***

Hér má lesa nánar um upphafsgreiningu talsmanns neytenda á hugsanlegum viðbrögðum við dóminum og álitaefnum sem dómarnir svara og vekja.

 

Til baka



Fréttasafn

Senda frétt



Heimilt er að birta merki talsmanns neytenda með fréttum af vef embættisins - www.tn.is - en óskað er eftir því að þeirrar heimildar sé getið.

Greinar

27. jún. 2010

„Neytendur voru sýknaðir“

Sérfræðingur í kröfurétti og fullnusturéttarfari telur í áliti til talsmanns neytenda fullvíst að dómar Hæstaréttar um gengistryggð bílalán eigi einnig við um slík íbúðarlán og rökstyður það m.a. með vísan til lagareglna um skuldabréf.
Nánar

18. jún. 2010

Áhrif gengisdómanna og viðbrögð

Endurbirtur pistill talsmanns neytenda á eyjan.is frá í gær um æskileg - og síður æskileg - viðbrögð sem dómar Hæstaréttar í gengismálum kalla á, svo og um álitamál sem vakna um áhrif þeirra.
Nánar

19. apr. 2010

Hamfaraviðbrögð

Ræða talsmanns neytenda á Austurvelli laugardaginn 17. apríl 2010 - þar sem borin voru saman viðbrögð stjórnvalda við efnahagshamförum annars vegar og við náttúruhamförum hins vegar.
Nánar

24. mar. 2010

Skattur á niðurfærslu skulda neytenda stenst ekki stjórnarskrá

Telja verður að afstaða um skattskyldu vegna niðurfærslu skulda neytenda standist varla lög og áform um skattlagningu niðurfærslu nú fari í bága við stjórnarskrá - enda sé um ekki um að ræða ívilnun eða „eignaauka“ heldur staðfestingu á rétti neytenda. Er þá m.a. litið til þess að löggjafinn hefur þegar fallist á að forsendubrestur hafi orðið.
Nánar

Greinasafn


Languages

Íslenska English

Aukaval


Aukaval




Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli