22. jún. 2010
Nú geta neytendur sjálfir borið saman símakostnað
Póst- og fjarskiptastofnun setur í dag á laggirnar á vefslóðinni www.reiknivél.is handhægt tæki fyrir neytendur til þess að bera sjálfir saman hagstæðustu lausnir fyrir síma og niðurhal miðað við áætlaða meðalnotkun sína.
Hin nýja Reiknivél PFS - www.reiknivél.is - tekur til algengustu innanlandsnotkunar á heimasíma og farsíma og niðurhals á gögnum erlendis frá með ADSL tengingum. Talsmaður neytenda fagnar þessu framtaki Póst- og fjarskiptastofnunar sem er til þess fallið að bæta í raun hag neytenda á þessum mikilvæga markaði um mun og stuðla að virkari samkeppni og gegnsæjari verðmyndun og verðkynningu af hálfu fyrirtækjanna.
Pakkartilboð ekki með
Tekið skal fram að pakkatilboð eru ekki tekin með í þessari nýju þjónustu enda eru pakkar ósambærilegir og auk þess til þess fallnir að draga úr samkeppni og slæva verðskyn neytenda. Ekki er heldur gert ráð fyrir að reiknivélin sé notuð til að sannreyna símareikninga einstakra neytenda enda geta einstaklingsbundin sérkjör s.s. vinanúmer og notkun hvers um sig ruglað myndina. Auk þess sem eru reikningar fjarskiptafyrirtækja mismunandi.
Ný þjónusta við neytendur - Reiknivél PFS um fjarskiptakostnað opnuð
Fréttatilkynning PFS er svohljóðandi - en nánari upplýsingar má finna á vef stofnunarinnar www.pfs.is og í fjölmiðlum næstu daga:
„Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) hefur opnað vefinn Reiknivél PFS, www.reiknivél.is. Tilgangur reiknivélarinnar er að auðvelda neytendum að átta sig á flóknum fjarskiptamarkaði og bera saman verð á þjónustuleiðum fjarskiptafyrirtækjanna fyrir heimasíma, farsíma og ADSL nettengingar. Reiknivél PFS tekur til algengustu innanlandsnotkunar á heimasíma og farsíma og niðurhals á gögnum erlendis frá með ADSL tengingum.
Hægt er að fara tvær leiðir við notkun vélarinnar fyrir heimasíma og farsíma: Nota hreyfanlegan kvarða þar sem gengið er út frá meðalgildum fyrir litla til mikla notkun, eða slá inn eigin tölur. Við útreikning ber reiknivélin saman verðskrár fjarskiptafyrirtækjanna fyrir sambærilegar þjónustuleiðir. Ekki er gert ráð fyrir að reiknivélin sé notuð til að sannreyna símareikninga einstakra notenda. Ástæður þess eru t.d. einstaklingsbundin sérkjör s.s. vinanúmer, dreifing á lengd símtala er mjög einstaklingsbundin, auk þess sem reikningar fjarskiptafyrirtækjanna eru mismunandi og misjafnt hvaða upplýsingar koma fram.
Á vefnum Reiknivél PFS, www.reiknivél.is, eru leiðbeiningar um notkun vélarinnar, spurningar og svör varðandi notkun hennar, skýringar á forsendum útreikninga og hlekkir á ýmsan gagnlegan fróðleik fyrir neytendur um ýmislegt sem varðar farsíma-, heimasíma- og netþjónustu.“
***
Nánari upplýsingar veitir Anna Margrét Sigurðardóttir, kynningarfulltrúi PFS, annams@pfs.is s. 510-1527
Til bakaFréttasafn
Heimilt er að birta merki talsmanns neytenda með fréttum af vef embættisins - www.tn.is - en óskað er eftir því að þeirrar heimildar sé getið.