7. maí 2010
Opinn þingnefndarfundur um verðtryggingu
Nk. mánudag kl. 9:30 býður viðskiptanefnd Alþingis efnahags- og viðskiptaráðherra, talsmanni neytenda og fulltrúum Hagsmunasamtaka heimilanna á opinn fund um verðtryggingu - í beinni útsendingu.
Fundurinn er haldinn í tilefni af frumvarpi um takmörkun verðtryggingar og verður haldinn nk. mánudagsmorgun, 10. maí 2010
Fundurinn er opinn og yfirskriftin er „Verðtrygging á Íslandi.“ Fundurinn hefst kl. 9:30 og stendur til hádegis. Hann er haldinn á nefndasviði Alþingis að Austurstræti 8-10 og verður honum sjónvarpað beint á vef Alþingis.
Í tilefni af þingmáli um takmörkun verðtryggingar
Viðskiptanefnd Alþingis ákvað í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar um þingmál Framsóknarflokksins um verðtryggingu rétt fyrir síðustu jól, sem hér má lesa um, að halda slíkan opinn fund; í frétt á vef embættisins um þann fund sagði m.a.:
„Talsmaður neytenda hvetur til opinna fundarhalda um réttmæti verðtryggingar og vill fá prófaða þá kenningu að hún sé ekki aðeins afleiðing verðbólgu - heldur kunni sjálfkrafa verðtrygging neytendalána einnig að hluta til að vera orsök stöðugrar verðbólgu.“
Eftirfarandi aðilum er boðið að svara spurningum nefndarmanna:
-
Efnahags- og viðskiptaráðherra.
-
Fulltrúum Hagsmunasamtaka heimilanna.
-
Talsmanni neytenda.
Í fundarboði nefndasviðs Alþingis segir:
„Gert er ráð fyrir opnum fundi í viðskiptanefnd mánudaginn 10. maí nk. og hér með óskað eftir að efnahags- og viðskiptaráðherra, talsmaður neytenda og fulltrúi Hagsmunasamtaka heimilanna verði gestir fundarins; kynni sjónarmið sín, svari spurningum nefndarmanna og veiti upplýsingar.
Staðsetning fundarins: Nefndasvið Alþingis, Austurstræti 8-10, gengið inn við Austurvöll.
Skipulag fundarins verður á þennan veg:
Kl. 9:30 Efnahags- og viðskiptaráðherra
Kl. 10:45 talsmaður neytenda og Hagsmunasamtök heimilanna
(Gestum í síðari hópnum er velkomið að fylgjast með útsendingu fyrri hlutar fundarins hér á nefndasviði).
[...]
Meðfylgjandi er skýrsla sem var unnin fyrir efnahags- og viðskiptaráðherra, ,,Verðtrygging á Íslandi – kostir og gallar“.
Vinsamlega kynnið ykkur reglur um opna fundi fastanefnda Alþingis:
http://www.althingi.is/vefur/reglur_opnir-fundir“
Nýr, fátíður en ekki dæmalaus vettvangur
Dæmi um slíkan opinn fund hjá viðskiptanefnd Alþingis má sjá hér frá apríl í fyrra. Umfjöllunarefni þá voru eftirfarandi:
-
viðbrögð stjórnvalda við erfiðleikum á fjármálamarkaði síðustu vikur;
-
einnig aðgerðir varðandi smærri fjármálafyrirtæki;
-
skýringar á aðgerðum stjórnvalda vegna beitingar neyðarlaganna gagnvart Straumi, SPRON og Sparisjóðabankanum;
-
fjárhagsleg fyrirgreiðsla til Verðbréfastofunnar og Saga Capital og fyrirheit um stuðning við nokkra sparisjóði.
Á þeim fundi voru að vísu aðeins fulltrúar stjórnvalda, þ.e. auk viðskiptaráðherra stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins og aðstoðarseðlabankastjóri.
Nú einnig fulltrúar neytenda
Varðandi væntanlegan fund - sem er nokkurt nýmæli sem áður segir - um verðtryggingu er fulltrúum neytenda, þ.e. talsmanni neytenda og Hagsmunasamtökum heimilanna, hins vegar einnig boðið að ræða verðtryggingu á gagnrýnan hátt.
Til baka
Fréttasafn
Heimilt er að birta merki talsmanns neytenda með fréttum af vef embættisins - www.tn.is - en óskað er eftir því að þeirrar heimildar sé getið.