17. mar. 2010
Aukinn skilningur á skuldvanda neytenda og leiðir til lausnar
Fagna ber yfirlýstum vilja stjórnvalda til þess að koma til móts við skuldara bílalána og áréttað að gerðardómur er vonandi enn fær leið til þess að leysa skuldamál neytenda heildstætt. Bent er á að íbúðarlán eru ekki síður íþyngjandi en bílalán, einkum ef þau eru tengd gengi erlendra gjaldmiðla.
Talsmaður neytenda fagnar fram komnum yfirlýsingum stjórnvalda um að koma frekar til móts við neytendur vegna skuldavanda þeirra.
Réttindi eða geta?
Tvennt skilur að í nálgun stjórnvalda við lausn á vandanum og þeim tillögum sem talsmaður neytenda hefur látið frá sér fara:
- Réttur eða geta; annars vegar virðast stjórnvöld enn nálgast málið frá þeirri sýn að þeir, sem geti greitt meintar skuldir sínar, eigi að greiða. Koma eigi fyrst og fremst til móts við þá sem geta ekki greitt umkrafðar skuldir.
- Talsmaður neytenda hefur hins vegar fyrst og fremst nálgast álitaefnið út frá réttindum neytenda vegna hugsanlegs ólögmætis gengislána og með svonefndan forsendubrest í huga - óháð greiðslugetu. Stjórnvöld geta hins vegar vitaskuld með málefnalegum hætti greint á milli skuldara eins og gert er ráð fyrir í tillögum talsmanns neytenda.
- Íbúðarlán gleymist ekki. Hins vegar er þörf á að taka einnig á heildstæðan hátt á skuldavanda vegna íbúðarhúsnæðis eins og tillögur talsmanns neytenda taka mið af.
Talsmaður neytenda minnir á
- tilmæli sín til fjármálafyrirtækja um samningsbundinn gerðardóm frá ágústlokum og
- tillögu sína frá apríllokum í fyrra til stjórnvalda um stjórnskipaðan gerðardóm.
Yfirlit yfir tillögur talsmanns neytenda má finna hér, myndrænt og með tenglum í tillögurnar sjálfar.
Til baka
Fréttasafn
Heimilt er að birta merki talsmanns neytenda með fréttum af vef embættisins - www.tn.is - en óskað er eftir því að þeirrar heimildar sé getið.