10. mar. 2010

Ráðuneyti svarar fyrirspurn um gengislán


Talsmaður neytenda hefur fengið svar við fyrirspurn til efnahags- og viðskiptaráðuneytis um hvort aflað hafi verið lögfræðiálits um (ó)lögmæti gengisbundinna lána. Hann er bundinn þagnarskyldu um atriði sem fram koma í minnisblaði um málið.



Efnahags- og viðskiptaráðuneytið hefur eftir nokkrar óformlegar ítrekanir brugðist við bréflegri fyrirspurn talsmanns neytenda frá í október sl. þar sem  m.a. var spurt hvort aflað hefði verið lögfræðiálits um lögmæti gengistryggðra lána. Óskað var eftir afriti af því áliti ef til væri. Bréfinu fylgdi minnisblað um lánveitingar í erlendri mynt, dags. 9. júní 2009. 

 

Óheimilt að skýra frá inntaki minnisblaðs

Þar sem minnisblaðið er ritað til eigin afnota ráðuneytis eru efnahags- og viðskiptaráðuneytið og talsmaður neytenda á einu máli um að hann sé bundinn þagnarskyldu um inntak minnisblaðsins samkvæmt lögum um embættið, sbr. upplýsingalög.

 

Talsmanni neytenda þykir að greina frá þessu jákvæða svari enda var greint frá fyrirspurn hans á sama vettvangi.

 

[* Aths. TN 17.8.'10: Hinn 10. ágúst sl. birti ráðuneytið umrætt minnisblað sem finna má sem PDF-skjal í fréttatilkynningu ráðuneytisins þann dag.]

 

Til baka



Fréttasafn

Senda frétt



Heimilt er að birta merki talsmanns neytenda með fréttum af vef embættisins - www.tn.is - en óskað er eftir því að þeirrar heimildar sé getið.

Greinar

27. jún. 2010

„Neytendur voru sýknaðir“

Sérfræðingur í kröfurétti og fullnusturéttarfari telur í áliti til talsmanns neytenda fullvíst að dómar Hæstaréttar um gengistryggð bílalán eigi einnig við um slík íbúðarlán og rökstyður það m.a. með vísan til lagareglna um skuldabréf.
Nánar

18. jún. 2010

Áhrif gengisdómanna og viðbrögð

Endurbirtur pistill talsmanns neytenda á eyjan.is frá í gær um æskileg - og síður æskileg - viðbrögð sem dómar Hæstaréttar í gengismálum kalla á, svo og um álitamál sem vakna um áhrif þeirra.
Nánar

19. apr. 2010

Hamfaraviðbrögð

Ræða talsmanns neytenda á Austurvelli laugardaginn 17. apríl 2010 - þar sem borin voru saman viðbrögð stjórnvalda við efnahagshamförum annars vegar og við náttúruhamförum hins vegar.
Nánar

24. mar. 2010

Skattur á niðurfærslu skulda neytenda stenst ekki stjórnarskrá

Telja verður að afstaða um skattskyldu vegna niðurfærslu skulda neytenda standist varla lög og áform um skattlagningu niðurfærslu nú fari í bága við stjórnarskrá - enda sé um ekki um að ræða ívilnun eða „eignaauka“ heldur staðfestingu á rétti neytenda. Er þá m.a. litið til þess að löggjafinn hefur þegar fallist á að forsendubrestur hafi orðið.
Nánar

Greinasafn


Languages

Íslenska English

Aukaval


Aukaval




Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli