16. des. 2009
Símafyrirtæki hugi sérstaklega að réttarstöðu barna
Í nýlegri umsögn fagnar talsmaður neytenda tilmælum PFS um neytendaskilmála fjarskiptafyrirtækja en bendir á að rétt sé að huga sérstaklega að hagsmunum barna í símaviðskiptum.
Talsmaður neytenda gaf nýverið umsögn um drög Póst og fjarskiptastofnunar (PFS) að tilmælum um birtingu og lágmarksinnihald viðskiptaskilmála fjarskiptaþjónustu og skyldu fjarskiptafyrritækja til að tilkynna notendum um breytingar á þeim.
Tilkynna ber verðbreytingar með mánaðarfyrirvara
Tók talsmaður neytenda m.a. undir þann lagaskilning PFS um það meginatriði að verð og gjaldskrá teljist til mikilvægra skilmála sem ekki verði breytt nema með sannanlegri tilkynningu til neytenda með lögákveðnum mánaðarfyrirvara. Hefur talsmaður neytenda áður með tilmælum áréttað þetta gagnvart símafyrirtækjum.
Réttarstaða barna gagnvart símafyrirtækjum sé sérstaklega tryggð
Fagnaði talsmaður neytenda, Gísli Tryggvason, áformum PFS og hvatti til þess að tilmælin yrðu gefin út en benti á nokkur minniháttar álitaefni, svo sem að tilefni kynni að vera til þess að
„víkja sérstaklega að réttarstöðu barna sem neytenda í fjarskiptaþjónustu og við kaup á virðisaukandi þjónustu. M.a. þarf að taka afstöðu til þess hvort ástæða sé til þess að vernda börn sérstaklega gegn óæskilegu innihaldi og ófyrirséðum kostnaði við aðra virðisaukandi þjónustu.“
Sjá nánar:
Til baka
Fréttasafn
Heimilt er að birta merki talsmanns neytenda með fréttum af vef embættisins - www.tn.is - en óskað er eftir því að þeirrar heimildar sé getið.