26. okt. 2009

Réttur korthafa til endurgreiðslu flugferðar ef ferð er ekki farin


Neytendur eiga endurkröfurétt á greiðslukortafyrirtæki ef bú flugfélags er tekið til gjaldþrotaskipta áður en ferð er farin og annað flugfélag yfirtekur ekki ferðina.



Talsmaður neytenda hefur að gefnu tilefni og í samráði við helstu greiðslumiðlunarfyrirtæki á Íslandi tekið saman stutta lýsingu á því hvaða rétt korthafar, sem greiða fyrir flug með kreditkorti, hafa ef flugfélag verður gjaldþrota áður en ferðin er farin.

 

Ef greitt er með kreditkorti á neytandi endurkröfurétt ef flugfélag fer á hausinn og ferð er ekki farin

Að meginstefnu gildir eftirfarandi hjá Borgun vegna Master Card og Valitor vegna VISA.


Ef korthafi hefur greitt fyrir flugmiða með kreditkorti og viðkomandi flugfélag hættir starfsemi áður en ferð er farin á korthafi endurkröfurétt vegna þeirrar kortafærslu.


Ef annað flugfélag tekur á hinn bóginn við skuldbindingum gjaldþrota flugfélagsins og býður korthafa flug á sama tíma er endurkröfuréttur korthafa ekki fyrir hendi samkvæmt reglum félaganna.

 

90 daga fyrningarfrestur

Ef korthafi á rétt á endurkröfu ber honum samkvæmt innanhússreglum Borgunar og Valitor að hafa samband við útgefanda kortsins innan 90 daga frá dagsetningu flugsins og gera skriflega athugasemd við kortafærsluna. Kortafélagið gerir þá endurkröfu á seljandann eða færsluhirðinn og endurgreiðir upphæðina til korthafa.

 

Innanhússreglur byggðar á lögum

Nánar má lesa um reglur Borgunar á vef félagsins vegna Mastercard. Útgefendur VISA-korta, sem eru bankar og sparisjóðir, svo og þjónustuver Valitor veita allar nánari upplýsingar vegna endurkröfuréttar VISA-korta. Á heimasíðu banka og sparisjóða má finna viðskiptaskilmála VISA-kortanna.

 

Innanhússreglur greiðslukortafyrirtækjanna byggjast á óskráðum og skráðum reglum laga um neytendalán, lögum um húsgöngu- og fjarsölusamninga, lögum um fjármálafyrirtæki lögum  og lögum um fjarsölu á fjármálaþjónustu.

 

Ferðatrygging

Auk þeirra reglna er ferðaskrifstofum og ferðaskipuleggjendum skylt að hafa tryggingu skv. V. kafla laga nr. 73/2005 um skipan ferðamála.

 

Til baka



Fréttasafn

Senda frétt



Heimilt er að birta merki talsmanns neytenda með fréttum af vef embættisins - www.tn.is - en óskað er eftir því að þeirrar heimildar sé getið.

Greinar

27. jún. 2010

„Neytendur voru sýknaðir“

Sérfræðingur í kröfurétti og fullnusturéttarfari telur í áliti til talsmanns neytenda fullvíst að dómar Hæstaréttar um gengistryggð bílalán eigi einnig við um slík íbúðarlán og rökstyður það m.a. með vísan til lagareglna um skuldabréf.
Nánar

18. jún. 2010

Áhrif gengisdómanna og viðbrögð

Endurbirtur pistill talsmanns neytenda á eyjan.is frá í gær um æskileg - og síður æskileg - viðbrögð sem dómar Hæstaréttar í gengismálum kalla á, svo og um álitamál sem vakna um áhrif þeirra.
Nánar

19. apr. 2010

Hamfaraviðbrögð

Ræða talsmanns neytenda á Austurvelli laugardaginn 17. apríl 2010 - þar sem borin voru saman viðbrögð stjórnvalda við efnahagshamförum annars vegar og við náttúruhamförum hins vegar.
Nánar

24. mar. 2010

Skattur á niðurfærslu skulda neytenda stenst ekki stjórnarskrá

Telja verður að afstaða um skattskyldu vegna niðurfærslu skulda neytenda standist varla lög og áform um skattlagningu niðurfærslu nú fari í bága við stjórnarskrá - enda sé um ekki um að ræða ívilnun eða „eignaauka“ heldur staðfestingu á rétti neytenda. Er þá m.a. litið til þess að löggjafinn hefur þegar fallist á að forsendubrestur hafi orðið.
Nánar

Greinasafn


Languages

Íslenska English

Aukaval


Aukaval




Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli