29. sep. 2009
Gerðardómslausn enn fær sem skilvirk og skjót lausn á skuldavanda
Hér eru birtar glærur og meginatriði úr erindi talsmanns neytenda á fundi Félags viðskipta- og hagfræðinga í dag þar sem tillaga um gerðardómslausn var kynnt og áréttuð.
Á góðum og fjölsóttum hádegisverðarfundi á Grand Hótel í dag á vegum Félags viðskipta- og hagfræðinga fjallaði Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, um ólíka sýn lögfræðinnar og hagfræðinnar á skuldavanda heimilanna. Hagfræðingar virtust margir líta svo á - eins og stjórnvöld til þessa - að þeir, sem gætu greitt af lánum sínum, ættu að greiða. Lögfræðingar nálgast málið að hans mati frekar eins og talsmaður neytenda o.fl. að réttlætis- og lagasjónarmið ættu að ráða úrslitum um greiðslur og höfuðstóla neytendalána.
Enn ekki samráð
Benti talsmaður neytenda á að enn hefði raunverulegt samráð ekki átt sér stað af hálfu stjórnvalda við fulltrúa lántakenda eins og Hagsmunasamtök heimilanna hafa einnig áréttað.
Greindi hann frá fyrri tillögu sinni í apríllok til stjórnvalda um stjórnskipaðan gerðardóm til þess að meta hvernig mætti færa niður íbúðarveðlán.
Samið verði um gerðardóm, líka um bílalán
Þá rakti talsmaður neytenda nýja útfærslu á þeirri aðferð - með samningsbundnum gerðardómi sem kröfuhafar og neytendur yrðu að semja um samkvæmt gildandi lögum frá 1989. Í lokin velti hann fyrir sér hver næstu skref hans gætu orðið ef kröfuhafar féllust ekki á tilmæli um að leggja málið í gerð, þ.e. hvernig hann gæti ráðlagt neytendum um færar leiðir til þess að leysa úr ágreiningi um lögmæti og réttmæti neytendalána - m.a. vegna forsendubrests í kjölfar bankahruns og endurtekins gengishruns.
Flokkun á þeim leiðum sem ræddar hafa verið
Í upphafi greindi talsmaður neytenda í erindi sínu á milli ólíkra leiða eftir nálgun og vettvangi:
| Dómstólar | Löggjafi | Úrskurður | Gerðardómur | |
| Sértækar lausnir | Málsókn/-vörn (flýtimeðferð ekki fær) | Greiðsluaðlögun | ||
| Almennar lausnir | Hópmálsókn (lagaheimild skortir) | Flöt niðurfærsla | Samræmd niðurfærsla | |
| Almenn frestun | Væntanleg aðlögun greiðslubyrði | |||
|
Jákvæð breyting: viðurkennd þörf almennra aðgerða |
Síðdegisútvarp Rásar 2 í Ríkisútvarpinu fjallaði um málið með löngu viðtali við talsmann neytenda í dag auk fréttastofu.
Til baka
Fréttasafn
Heimilt er að birta merki talsmanns neytenda með fréttum af vef embættisins - www.tn.is - en óskað er eftir því að þeirrar heimildar sé getið.