24. sep. 2009

Tekið undir með ASÍ - svo langt sem tillögurnar ná


Talsmaður neytenda tekur undir góðar tillögur ASÍ um úrbætur á lögum um greiðsluaðlögun o.fl. - en áréttar það sem fram kom fyrir rúmum 7 mánuðum að sértækt úrræði til greiðsluaðlögunar dugir engan veginn til fyrir neytendur vegna forsendubrests í kjölfar efnahagshruns.



Talsmaður neytenda hefur í dag kynnt sér á vef ASÍ ítarlegar, vel rökstuddar og ágætlega útfærðar tillögur um úrbætur á lögum um greiðsluaðlögun og öðrum lögum sem tengjast skuldavanda heimilanna.

 

Fagnað og tekið undir - en ennþá alls ekki nægilegt

Fagna ber frumkvæði samtakanna og samantekt enda er að mestu leyti unnt að taka undir tillögunar - sem eru í ágætu samræmi við úrbótatillögur talsmanns neytenda, Gísla Tryggvasonar, í umsögn um frumvörp um málið í febrúar.

 

Þar kom þó einnig fram að frumvörpin væru ekki til þess fallin að leysa vanda neytenda í kjölfar efnahagshruns:

 

„Frumvörpin eru að mínu mati betur til þess fallin að mæta réttmætum hagsmunum neytenda en drög að frunmvarpi til laga um greiðsluaðlögun sem viðskiptaráðuneytið sendi mér til umsagnar sl. sumar. Engu að síður tel ég ljóst að miðað við núverandi aðstæður nær greiðsluaðlögunarúrræðið engan veginn að mæta þeim mikla vanda sem íslensk heimili standa frammi fyrir vegna íbúðarveðlána og annarra skulda.“

 

Gagnrýni og úrbótatillögur

Í umsögn sinni í febrúar sl. tók talsmaður neytenda undir gagnrýni ASÍ o.fl. á stjórnarfrumvarpið og tillögur ASÍ til úrbóta á því - en lagði til nokkrar breytingar að auki sem flestar voru nefndar á fundi hjá allsherjarnefnd Alþingis:

 

  1. „Úrræðið verði nefnt skuldaaðlögun eins og í frumvarpi Sjálfstæðisflokksins (278. mál).
  2. Sérlög verði sett um úrræðið eins og gert er ráð fyrir í frumvarpi Framsóknarflokksins (275. mál) en ekki breytingarlög við lög um gjaldþrotaskipti o.fl. eins og hin frumvörpin gera ráð fyrir.
  3. Lögin heyri undir málefnasvið félags- og tryggingamálaráðherra eins og ég hef lagt til í fyrri umsögnum.
  4. Tryggður verði einhliða réttur skuldara - fyrst og fremst neytenda - til skuldaaðlögunar að uppfylltum skýrum efnisskilyrðum eins og ég lagði áherslu á í fyrri umsögnum.
  5. Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna verði falið leiðbeiningarhlutverk eins og ég hef lagt til og heimilt er samkvæmt frumvarpi Sjálfstæðisflokksins og stjórnarfrumvarpinu (278. og 181. mál) en þyrfti að vera skýrara.
  6. Sýslumaður fari með úrskurðarvald í upphafi um heimild til skuldaaðlögunar eins og ég hef áður lagt til og gert er ráð fyrir í frumvarpi Framsóknarflokksins (275. mál).
  7. Athugað verði hvort til skilvirkni og samræmingar horfi að sýslumaðurinn í Reykjavík hafi úrskurðarvald á öllu landinu en sýslumenn um allt land taki við umsóknum neytenda í umdæmi hvers um sig og leiðbeini þeim um formsatriði og framsendi mál til úrskurðar hjá sýslumanninum í Reykjavík, sbr. fyrri umsagnir mínar.
  8. Allir aðilar máls hafi skýran málskotsrétt og athugað verði hvort ekki sé rétt að málskotsréttur nái til Hæstaréttar í öllum tilvikum eins og stjórnarfrumvarpið gerir ráð fyrir í sumum tilvikum (281. mál).
  9. Skuldaaðlögun nái til allra skulda eins og ASÍ o.fl. hafa bent á - bæði til veðskulda og til skulda í eigu annarra en ríkisbanka og Íbúðarlánasjóðs.“

 

Samanburður

Þar er einnig að finna eftirfarandi samanburð á frumvörpunum þremur sem öll gengu of skammt að mati talsmanns neytenda auk þess sem almennar aðgerðir þarf, sem sagt, til:

 

Stjórnarfrv. Frv. Framsóknarflokks Frv. Sjálfstæðisflokks
Sérlög Nei Nei
Heiti Greiðsluaðlögun Greiðsluaðlögun Skuldaaðlögun
Ákvörðunarvald Héraðsdómur Sýslumaður Héraðsdómur
Veðlán Sum, tímabundið Nei Nei
Aðlögunartími Ótilgreindur 3 ár Ótilgreindur
Efnisatriði  Nokkuð skýr Skýr Nokkuð skýr
Ábyrgð Líklega ekki Nei Líklega ekki
Óháð sérfræðiaðstoð Heimild Nei Heimild
Málskotsréttur Takmarkaður Takmarkaður Takmarkaður

 

Til baka



Fréttasafn

Senda frétt



Heimilt er að birta merki talsmanns neytenda með fréttum af vef embættisins - www.tn.is - en óskað er eftir því að þeirrar heimildar sé getið.

Greinar

27. jún. 2010

„Neytendur voru sýknaðir“

Sérfræðingur í kröfurétti og fullnusturéttarfari telur í áliti til talsmanns neytenda fullvíst að dómar Hæstaréttar um gengistryggð bílalán eigi einnig við um slík íbúðarlán og rökstyður það m.a. með vísan til lagareglna um skuldabréf.
Nánar

18. jún. 2010

Áhrif gengisdómanna og viðbrögð

Endurbirtur pistill talsmanns neytenda á eyjan.is frá í gær um æskileg - og síður æskileg - viðbrögð sem dómar Hæstaréttar í gengismálum kalla á, svo og um álitamál sem vakna um áhrif þeirra.
Nánar

19. apr. 2010

Hamfaraviðbrögð

Ræða talsmanns neytenda á Austurvelli laugardaginn 17. apríl 2010 - þar sem borin voru saman viðbrögð stjórnvalda við efnahagshamförum annars vegar og við náttúruhamförum hins vegar.
Nánar

24. mar. 2010

Skattur á niðurfærslu skulda neytenda stenst ekki stjórnarskrá

Telja verður að afstaða um skattskyldu vegna niðurfærslu skulda neytenda standist varla lög og áform um skattlagningu niðurfærslu nú fari í bága við stjórnarskrá - enda sé um ekki um að ræða ívilnun eða „eignaauka“ heldur staðfestingu á rétti neytenda. Er þá m.a. litið til þess að löggjafinn hefur þegar fallist á að forsendubrestur hafi orðið.
Nánar

Greinasafn


Languages

Íslenska English

Aukaval


Aukaval




Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli