18. sep. 2009
Óskað fullrar aðildar að leit að lausnum við skuldavanda heimilanna
Hópur aðila, sem stóðu að ákalli til stjórnvalda um lausn á skuldavanda heimilanna 11. febrúar sl. og endurnýjun þess 11. september sl., fundaði í vikunni með ráðherra og þingflokkum stjórnarflokkanna og óskaði eftir aðild að tillögugerð til lausnar.
Samráðshópur fulltrúa lántakenda, sem stóð að ákalli til stjórnvalda um almennar lausnir á efnahagsvanda heimilanna 11. febrúar sl. og endurnýjun þess 11. september sl., átti í vikunni fundi með með Árna Páli Árnasyni, félags- og tryggingamálaráðherra, og þingflokkum Samfylkingarinnar og Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs (VG). Sett var fram sú ósk að hópurinn fengi fulltrúa í vinnu við að finna frekari lausnir á skuldavanda neytenda.
Afar jákvæðir fundir
Auk þess var fundað með forystu Alþýðusambands Íslands og framkvæmdarstjórn Neytendasamtakanna.
Allir fundirnir voru afar jákvæðir og virðist sem augu ráðamanna séu að opnast gagnvart þörf fyrir víðtækar og almennar aðgerðir til lausnar á skuldavanda heimilanna.
Þá hefur verið óskað eftir sambærilegum fundum með þingflokkum stjórnarandstöðuflokkanna.
Óskað eftir beinni aðild að því að leita lausna
Ákallshópurinn óskaði eftir því á fundinum með ráðherra að fá aðild að undirbúningi og tillögugerð og býður fram krafta og hugmyndir aðila við leit að færum lausnum. Sama ósk var sett fram á fundinum með þingflokki VG.
Hópurinn vill í framhaldinu geta átt þátt í að skapa þá þjóðarsátt um afkomuöryggi almennings sem nú er rík þörf fyrir.
Vænst er jákvæðra viðbragða frá ráðherra við ósk „Ákallshópsins“ um að fá virka aðild að undirbúningi tillagna ríkisstjórnarinnar.
Óformlegt samstarf í nær 8 mánuði
Í hópnum hafa frá upphafi verið eftirfarandi aðilar en nýverið bættust Lögmenn Laugardal við hópinn:
-
Búseti á Norðurlandi.
-
Félag fasteignasala.
-
Hagsmunasamtök heimilanna.
-
Húseigendafélagið.
-
Talsmaður neytenda.
Til baka
Fréttasafn
Heimilt er að birta merki talsmanns neytenda með fréttum af vef embættisins - www.tn.is - en óskað er eftir því að þeirrar heimildar sé getið.