21. sep. 2009
Boðist til að aðstoða stjórnvöld við að svara ESB vegna neytenda
Talsmaður neytenda hefur ásamt Neytendasamtökunum boðið utanríkisráðuneytinu aðstoð við að svara framkvæmdarstjórn ESB spurningum er varða neytendur.
Neytendasamtökin og talsmaður neytenda hafa ákveðið að taka saman höndum við að greina og meta hagsmuni og réttindi neytenda sjálfstætt m.t.t. umsóknar íslenska ríkisins um fulla aðild að Evrópusambandinu (ESB).
Vilja aðstoða stjórnvöld við svör til ESB - eða rýna þau sjálfstætt
Í kjölfar þess að fyrr í mánuðinum var birtur listi yfir spurningar framkvæmdarstjórnar ESB til íslenskra stjórnvalda vegna aðildarumsóknar Íslands hafa Neytendasamtökin og talsmaður neytenda boðið stjórnvöldum aðstoð við að svara spurningum er lúta að hagsmunum og réttindum neytenda á öllum sviðum - en þau falla sem kunnugt er undir mörg ráðuneyti. Þá kemur einnig til álita að rýna sjálfstætt í þær spurningar, sem lúta að neytendum, ef ágreiningur rís við stjórnvöld um greiningu og mat á réttindum og hagsmunum neytenda.
Í samræmi við hlutverk Neytendasamtakanna og talsmanns neytenda
Tilgangur Neytendasamtakanna er að gæta hagsmuna neytenda í þjóðfélaginu.
Talsmaður neytenda hefur lögum samkvæmt m.a. það hlutverk að
-
standa vörð um hagsmuni og réttindi neytenda og
-
stuðla að aukinni neytendavernd auk þess að
-
setja fram tillögur um úrbætur til handa neytendum og
-
kynna réttarreglur um neytendamál, svo og
-
að bregðast við brotum gegn hagsmunum og réttindum neytenda.
Mikilvægt að svör séu óhlutdræg
Þar sem regluverk og umgjörð ESB hefur mikla þýðingu fyrir neytendur á Íslandi hafa Neytendasamtökin og talsmaður neytenda ákveðið að stilla saman strengi og aðstoða stjórnvöld eftir bestu getu við að svara ESB og búa Ísland þannig undir hugsanlega aðild að ESB, neytendum til góðs. Telja verður mikilvægt - þegar ESB metur aðildarumsóknina - að fyrir liggi réttar og óhlutdrægar upplýsingar um stöðu neytenda hér á landi.
Nánari upplýsingar veita
- Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, í GSM 897 33 14 og vs. 510 11 21, og
- Þuríður Hjartardóttir, framkvæmdarstjóri Neytendasamtakanna, í vs. 545 12 08.
Til baka
Fréttasafn
Heimilt er að birta merki talsmanns neytenda með fréttum af vef embættisins - www.tn.is - en óskað er eftir því að þeirrar heimildar sé getið.