10. sep. 2009
Frestur til að svara tilmælum um gerðardóm vegna neytendalána að renna út
Í næstu viku rennur út 3ja vikna frestur sem talsmaður neytenda gaf 25 kröfuhöfum til þess að svara tilmælum um að samið yrði um gerðardóm sem myndi leysa úr ágreiningi um forsendubrest o.fl. vegna neytendalána.
Nk. þriðjudag, 15. september, rennur út 3ja vikna frestur sem talsmaður neytenda gaf viðskiptabönkum, sparisjóðum, eignarleigufyrirtækjum og fulltrúum annarra kröfuhafa gagnvart neytendum til þess að svara tilmælum hans frá 25. ágúst sl. um að samið yrði við neytendur um skipun gerðardóms til þess að leysa með heildstæðum og samræmdum hætti úr ágreiningi um gengis- og verðtryggð lán til neytenda.
Liður í lögmæltu hlutverki embættisins
Í kjölfarið mun talsmaður neytenda taka ákvörðun um næstu skref sem hann telur þörf á til þess að gegna lögbundnu hlutverki sínu við að
-
standa vörð um hagsmuni og réttindi neytenda,
-
bregðast við brotum gegn þeim
-
og leiðbeina neytendum um færar leiðir til úrlausnar ágreinings við kröfuhafa.
Í niðurlagi tilmælanna segir:
„Tilmælin fela því í sér varaleið að frágenginni fyrrnefndri tillögu áður en tekin verður ákvörðun um hvernig megi að öðrum kosti leiðbeina neytendum um færar leiðir til meðferðar ágreinings milli neytenda og kröfuhafa langtímalána eins og mér ber samkvæmt 2. mgr. 7. gr. laga nr. 62/2005 um embættið.“
Kynning boðin á fundum, í fjölmiðlum og á vefnum
Talsmaður neytenda bauðst til þess að kynna tilmælin fyrir þeim sem óskuðu en tilmælin voru send í kjölfar þess að stjórnvöld höfðu ekki brugðist við tillögu um sambærilega lausn fjórum mánuðum áður.
Aðild neytenda nauðsynleg
Í frétt embættisins um tilmælin segir m.a.:
„Tillaga talsmanns neytenda í vor og tilmæli nú snúa að sveigjanlegri lausn sem stjórnvöld ákveði með málefnalegum hætti eða málsvarar neytenda komi að á jafnræðisgrundvelli ásamt kröfuhöfum. Útilokað er að dómi talsmanns neytenda að fela bönkum og öðrum lánveitendum sjálfdæmi um hvort, hvernig og gagnvart hverjum beri að færa niður skuldir.“
***
Nánari upplýsingar veitir Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda í síma 510 11 21 eða GSM 897 33 14.
Til baka
Fréttasafn
Heimilt er að birta merki talsmanns neytenda með fréttum af vef embættisins - www.tn.is - en óskað er eftir því að þeirrar heimildar sé getið.