31. ágú. 2009
Tilmæli um gerðardómslausn kynnt kröfuhöfum
Talsmaður neytenda hefur boðið stjórnendum 25 aðila - banka og annarra sem hafa veitt neytendum langtímalán - kynningu á tilmælum sem þeim voru send um skipun gerðardóms til þess að leysa úr ágreiningi um forsendubrest o.fl. í kjölfar gengis- og bankahruns.
Stjórnendum og öðrum fyrirsvarsmönnum 25 viðskiptabanka, sparisjóða, eignarleigufyrirtækja og slitastjórna auk ráðherra vegna Íbúðarlánasjóðs og Landssamtaka lífeyrissjóða hefur verið boðin kynning á tilmælum sem þeim voru send í síðustu viku. Gefinn var frestur til 15. september til þess að svara tilmælum talsmanns neytenda bréflega en tilmælin voru kynnt í fjölmiðlum og á vef embættisins í síðustu viku.
Tilmælin ganga út á að virkja eftirfarandi ákvæði laga um samningsbundna gerðardóma segir í 2. mgr. 1. gr. (undirstrikun TN):
„Aðilar geta með samningi ákveðið að leggja réttarágreining sín á milli í gerð ef þeir hafa forræði á sakarefninu. Slíkan samning má gera hvort heldur er um ágreining sem upp er kominn eða síðar kann að koma upp í tilteknum lögskiptum aðila.“
Fyrri kynning þegin af mörgum hagsmunaðilum
Einnig er þeim boðin kynning sem fengu afrit tilmælanna en það voru forsætisráðherra, Íbúðarlánasjóður, viðskiptaráðherra og Samtök fjármálafyrirtækja. Boðið er upp á val á milli sameiginlegra kynninga eða sérstakra kynninga eins og átti sér stað í vor á fyrri tillögu í sömu átt - sem beindist að stjórnvöldum - eins og lesa má um hér ásamt röksemdum fyrir tillögunni og glærusýningu um hana.
Tekið skal fram að öðrum hagsmunaaðilum stendur slík kynning einnig til boða eftir samkomulagi en samráð var haft við helstu hagsmunaaðila áður en tilmælin voru send til kröfuhafa.
Listi yfir mögulega aðila að gerðardómi kröfuhafamegin
Ef til samningsbundins gerðardóms yrði stofnað yrðu aðilar að honum allir neytendur, sem þess myndu óska, og lánveitendur, sem samþykkja slíkt skriflega.
Eftirfarandi fjármálafyrirtæki og kröfuhafar fengu tilmæli TN 09-1 frá 25. ágúst sl. um samningsbundinn gerðardóm til lausnar ágreinings um gengis- og verðtryggð lán til neytenda auk Landssamtaka lífeyrissjóða og félagsmálaráðherra vegna Íbúðarlánasjóðs (sjá grunnlista á http://www.sff.is/sff/adildarfelog/):
Viðskiptabankar
-
Íslandsbanki
-
Nýi Kaupþing banki hf.
-
NBI hf.
-
MP banki hf.
Eignarleigur
-
Avant hf.
-
Lýsing hf.
-
SP Fjármögnun hf.
Sparisjóðir
-
Byr sparisjóður
-
Sparisjóður Bolungarvíkur
-
Sparisjóður Höfðhverfinga
-
Sparisjóðurinn í Keflavík
-
Sparisjóður Norðfjarðar
-
Sparisjóður Ólafsfjarðar
-
Sparisjóður Siglufjarðar
-
Sparisjóður Skagafjarðar
-
Sparisjóður Strandamanna
-
Sparisjóður Suður-Þingeyinga
-
Sparisjóður Svarfdæla
-
Sparisjóður Vestfirðinga
-
Sparisjóður Vestmannaeyja
-
Sparisjóður Þórshafnar
Aðrir
-
Frjálsi fjárfestingarbankinn hf. - slitastjórn
-
SPRON - slitastjórn
***
Nánari upplýsingar veitir Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda í síma 510 11 21 eða GSM 897 33 14.
Til baka
Fréttasafn
Heimilt er að birta merki talsmanns neytenda með fréttum af vef embættisins - www.tn.is - en óskað er eftir því að þeirrar heimildar sé getið.