14. ágú. 2009
Þörf á að greina leigumarkað í mótun
Ásamt Félagi löggiltra leigumiðlara leggur talsmaður neytenda til að ráðherra húsnæðismála láti greina hagræn, þjóðfélagsleg og neytendaréttarleg álitamál varðandi leigumarkað með íbúðarhúsnæði.
Talsmaður neytenda hefur ásamt Félagi löggiltra leigumiðlara (FLL) sent félags- og tryggingamálaráðherra, Árna Páli Árnasyni, bréflega tillögu um að hann sem ráðherra húsnæðismála gangist fyrir greiningu á leigumarkaði með íbúðarhúsnæði í samstarfi við fjölmarga aðra hagsmunaaðila.
Fasteignamarkaður á tímamótum
Í bréfi talsmanns neytenda, Gísla Tryggvasonar, og formanns FLL, Svans Guðmundssonar, er bent er á að fasteignamarkaður standi nú á tímamótum. Talið er að þörf sé á að greina sérstaklega álitaefni sem varða leigumarkað sem sé að myndast í auknum mæli vegna aðstæðna í þjóðfélaginu. Eftirfarandi álitaefni eru tiltekin
-
hagræn,
-
þjóðfélagsleg og
-
neytendaréttarleg
álitaefni sem rísi á þessum tímamótum.
Ýmis álitaefni varðandi leigumarkað í þróun
Meðal röksemda sem nefndar eru til stuðnings erindinu eru eftirfarandi:
- Séreignastefna hefur verið rekin á landinu.
- Leigumarkaður er kominn til vegna aðstæðna á markaði og er í mótun.
- Ýmsir greiningaraðilar þurfa upplýsingar um leigumarkað.
- Lagaumhverfi og samspil markaða þarf að þróa vegna breyttra aðstæðna.
- Kanna þarf hvort leigumarkaður hafi áhrif á húsnæðissamvinnufélög, fasteignafélög og sérfélög með fasteignir og hvort þau þurfa að laga sig að leigumarkaði.
- Kanna þarf hvaða áhrif það hafi ef lánastofnanir verða í auknum mæli á íbúðarleigumarkaði og hvort eitthvað þurfi að varast í þeim efnum.
Fréttasafn
Heimilt er að birta merki talsmanns neytenda með fréttum af vef embættisins - www.tn.is - en óskað er eftir því að þeirrar heimildar sé getið.